Hlaðvörp
Hlaðvörp
Fótbolti.net hefur verið frumkvöðull í framleiðslu á hlaðvörpum en Laugardagsþáttur Fótbolta.net í umsjá Elvars Geirs Magnússonar og Tómasar Þórs Þórðarsonar og meðhjálpara þeirra hefur verið í loftinu í yfir sextán ár. Þátturinn er frumfluttur í beinni útsendingu á X977 en kemur svo á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net strax að útsendingu lokinni.
Aðrir þættir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net
Innkastið
Hlaðvarp um íslenska boltann í umsjón Elvars Geirs ritstjóra sem fær til sín að jafnaði tvo gesti. Hlustun er allt frá 4.000 og upp í tæplega 10.000 per þátt.
Áherslan er á Bestu deild karla en landsliðs umræða tekur við þegar Ísland spilar leiki hverju sinni. Þátturinn kemur út vikulega frá því um miðjan mars og að Íslandsmótinu loknu í lok október.
Enski Boltinn
Hlaðvarp um ensku úrvalsdeildina, lang vinsælustu erlendu deild heims sem Fótbolti.net fjallar um. Þátturinn er í umsjón Guðmunds Ásgeirssonar sem hefur unnið hjá Fótbolti.net í fjölda ára.
Þátturinn kemur út einu sinni í viku allt leiktímabilið og er hlustun mjög stöðug en rúmlega 5000 manns hlusta á hvern þátt.
Kvennaboltinn
Annað hlaðvarp í umsjón Guðmundar. Þátturinn kemur út á tveggja vikna fresti þegar tímabilið stendur yfir í Bestu deild kvenna.
38 umferðir
Hlaðvarp um draumaliðsleik ensku úrvalsdeildarinnar, Fantasy Premier League. Yfir 13 milljónir manna spila leikinn í heiminum og þar af yfir 25 þúsund manns á Íslandi, sem er hæsta þátttökuhlutfallið í heiminum per höfðatölu. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þátturinn kemur út eftir allar 38 umferðirnar í ensku úrvalsdeildinni og samhliða heldur þátturinn úti risastórri Fantasy deild með glæsilegum vinningum. Allir þættir eru teknir upp í mynd sem býður upp á aukinn sýnileika fyrir kostendur þáttarins. Hlustunin er á milli 3-5000 manns á hvern þátt.
Harkið
Hlaðvarp um 2. og 3.deild karla í umsjón Guðbjörn Smára Birgissonar og Grétar Óskarssonar ásamt því að fá gesti með sér við og við.
Hlustun á þáttinn er allt frá 3200-4300 manns.
Hlaðvarpið kemur út eftir hverja einustu umferð í báðum deildum, þar sem er farið yfir líðandi umferð ásamt því að spá í spilin í næstu umferð. Einnig er valið leikmenn umferðarinnar í hvorri deild fyrir sig og á mánaðarfresti eru kjörnir leikmenn mánaðarins í hvorri deild fyrir sig og þjálfari mánaðarins í báðum deildum. Þegar það er umferð í Gatorade bikarkeppninni, þá er henni líka gerð skil. Fyrsti þáttur er tekinn upp í apríl þar sem hitað er upp fyrir tímabilið og svo er lokaþáttur í september þar sem tímabilið verður gert upp.
Hafðu samband strax í dag og við hjálpum þér að koma þínum skilaboðum til okkar dygga hlustendahóps. Sendu okkur línu á fotbolti@fotbolti.net eða hringdu í 894-9205 – við hjálpum þér að ná árangri.